Skilmálar
Vöruskilmálar og eignarréttur
Básaleigjandi er að öllu leyti ábyrgur fyrir sínum bás og vörunum sem í honum eru. Óheimilt er með öllu að selja falsaðar, ólöglegar eða skaðlegar/hættulegar vörur í Venus. Vörur sem verslun telur ekki við hæfi geta verið fjarlægðar af starfsmönnum án viðvörunar.
Við reynum eftir fremsta megni að hafa góðar flíkur í versluninni okkar, Venus áskilur sér rétt að hafna uppsetningu eða fjarlægja vöru úr sölu meðan á sölutímabili stendur ef starfsfólk telur vöru ekki mæta kröfum Venus. Þetta á við um ástand vöru, hvort varan sé hrein, heilleg, slitin, ónýt, illa lyktandi eða gölluð að einhverju leyti. Auglýsingar, nafnspjöld eða annarskonar markaðssetning er ekki leyfileg í sölurými Venus nema með samþykki.
Aðeins fatnaður, skór og fylgihlutir t.d. veski, sólgleraugu, úr, skart eru leyfðir. Ásamt ilmvötnum og sambærilegum vörum í búðinni. Nytjamunir eins og borðspil, dót, raftæki, húsgögn eða skraut er með öllu óheimilt og verður fjarlægt.
Ath við leyfum ekki endursölu á notuðum nærfötum.
Vara í Venus er keypt í því ástandi sem hún er í, það er á ábyrgð kaupanda að skoða ástand vöru áður en hún er keypt. Starfsfólk hefur ekki heimild til að taka við vöru eftir að hún hefur verið keypt, gefa afslátt eða breyta verði. Ekki er hægt að skila vörum í Venus undir neinum kringumstæðum.
Verð og þóknun
Verðin sem gefin eru upp á vefsíðunni okkar eru með virðisaukaskatti. Venus tekur 28% (50% í 50/50 leiðinni) þóknun af heildarsölu hvers leigjanda, sem verður dregin frá söluhagnaði áður en greiðsla til leigjanda er framkvæmd.
Afbókanir
Ef þú ákveður að afpanta básinn þinn, getur þú fengið endurgreiðslu ef þú gerir það innan 14 daga fyrir bókun. Til þess að nýta þessa endurgreiðslurétt, þarftu að mæta í verslun okkar eða senda tölvupóst á info@venusverslun.is Ef þú afpantar með minna en 14 daga fyrirvara fyrir fyrsta dag leigutímabils er ekki hægt að fá endurgreitt.
Ef engar vörur eru komnar í verslun kl.16 á fyrsta degi básaleigu og básaleigjandi hefur ekki haft samband, þá er Venus heimilt að endurleigja básinn.
Sjálfstæður rekstur
Ef þú ætlar að reka verslun í básnum og selja vörur frá VSK-skráðu fyrirtæki, þarf að tilkynna það við bókun. Þú ert ábyrgur fyrir því að skila réttum upplýsingum til skattyfirvalda og gera viðeigandi ráðstafanir.
Viðskiptavinir sem selja vörur í atvinnuskyni er ekki heimilt að bóka fleiri en eitt sölurými ef um sölu á nýjum vörum er að ræða, aðilar sem selja nýjar vörur í atvinnuskyni bera ábyrgð á því að gefa upp réttar upplýsingar til skatts. Taka þarf fram við bókun ef selja á vörur frá VSK-skráðu fyrirtæki. Verði viðskiptavinur uppvís að því að brjóta þessa skilmála getur samningi hans verið rift og sölurými tæmt án endurgreiðslu á leiguverði.
Uppsetning og ábyrgð
Þú getur sett upp básinn þinn klukkutíma fyrir lokun daginn áður en leigutímabil hefst eða á bókunardegi samkvæmt opnunartíma. Vörur þurfa að vera merktar með verðmiðum sem eru til staðar frá Venus.
Ef varan þín er sett upp í kerfinu án mynd eða léleg lýsing er á vörunni og miðinn dettur af þá er líklegt að hún endi í tapað/fundið slánni, þess vegna er mikilvægt að skrá vörur með réttu nafni, stærð og mynd.
Þjófavarnir
Við notum öryggismyndavélar og fylgjumst með búðarþjófnaði og niðurtekt bása. Venus ber ekki ábyrgð á stolnum, týndum né skemmdum vörum. Verði vörur fyrir vatns- eða eldstjóni í tilfelli af eldsvoða eða vatnsskaða er Venus ekki bótaskyld. Innbústrygging básaleigjanda bætir hugsanlega bruna/vatnsskaða eða þjófnað.
– Venus mælir með að básaleigjandi hafi samband við sitt tryggingafélag til að fá frekari upplýsingar.
Breyting á verðmiðum/Afsláttur á bás
Ef þú vilt breyta verði á vörum í básnum á meðan á leigutímabili stendur, þarf að koma sem fyrst í verslun og fá nýjan merkimiða til að setja á vöruna.
Þegar breytir verði á vöru inn á “mitt venus” uppfærist það strax í sölukerfinu og selst varan samkvæmt því, ef það er misræmi á verðmiða og í kassakerfinu reynum við eftir bestu getu að leiðrétta verð en berum enga ábyrgð ef varan selst á “röngu” verði.
Ef þú vilt veita afslátt á vörum í básnum, getur þú haft samband við starfsfólk Venus og óskað eftir því að afsláttur verði settur inn í kerfið. Afsláttur getur verið frá 10-90%
Framlengja básaleigu
Ef að þú ert með bás á leigu og vilt framlengja tímabilið annað hvort á þeim bás sem þú ert þegar með (ef að sá bás er laus) eða vilt leigja nýjan bás. Þarft þú að bóka nýtt leigutímabil í „Bóka Bás“. Ef að sama básanúmer er fyrir valinu þarf ekki að skipta um merkimiða, hins vegar ef nýtt básanúmer er valið þarf að setja nýja verðmiða á vörurnar sem tilheyra þeim bás. Viðkomandi þarf að óska eftir því að starfsfólk færi vörurnar í tölvukerfinu úr gömlu básleigunni á nýju básleiguna áður en að bása leigjandi óskar útgreiðslu á seldum vörum.
Í lok leigutímans
Í lok básaleigu, á síðasta degi sölu, kemur þú að ganga frá básnum þínum og sækja vörur sem eftir eru. Mán-Fös kemur þú í síðasta lagi klukkan 17:30 en klukkan 15:30 um helgar. Næsti básleigjandi á rétt á básnum klukkustund fyrir lokun daginn áður en hans básaleiga hefst.
Mikilvægt er að þegar þú kemur að þú gefir þig fram við starfsmann í afgreiðslu og látir vita að þú sért að tæma bás. Vinsamlegast hafið skilríki meðferðis. Starfsfólk leiðbeinir básleigjanda um að sækja slá, setja vörur sínar á hana og koma með slána í niðurtektarherbergið, þar sem starfsfólk fer yfir verðmiða á vörunum og fjarlægir þjófavarnir.
Komist þú ekki á tilsettum tíma er hægt að semja við starfsfólk Venus fyrir klukkan 16 daginn sem básaleigu lýkur, um að tæma bás fyrir leigjanda gegn 3000kr gjaldi. Hægt er að sækja um þessa þjónustu með því að hringja í verslun okkar í síma 772-2232 eða senda tölvupóst á info@venusverslun.is
Ef ekkert er um samið, tekur starfsfólk Venus niður básinn gegn 5000kr gjaldi.
Starfsfólk geymir vörurnar í 7 daga að hámarki en 1.000 króna geymslugjald er innheimt fyrir hvern dag sem vörurnar eru í geymslu hjá Venus. Eftir þessa 7 daga eru vörurnar í eigu Venus. Sæki básaleigjandi ekki vörurnar sínar verða þessi gjöld dregin af söluhagnaði áður en hann er greiddur til básaleiganda.
Ef vörur eru ekki sóttar innan þess ramma teljast þær eign Venus sem selur þær áfram og gefur ágóða söluhagnaðar til góðgerðarmála.
Ef þú vilt gefa óseldar vörur í góðgerðarstarfsemi þá þarft þú að senda okkur tölvupóst fyrir lok básaleigu og tökum við niður básinn þér að kostnaðarlausu.
Útborgun á söluhagnaði
Þegar básaleigu er lokið og þú hefur sótt vörurnar þínar sem eftir eru, ferð þú á útborgunar lista og færð greitt eftir 5-10 virka daga, ef það er ekki greitt út á föstudegi er greitt á mánudegi. Mikilvægt er að skrá bankaupplýsingar inn á "Mitt Venus" svo hægt sé að greiða út söluhagnað. Eingöngu verður greitt út með millifærslu í heimabanka. Básaleigjandi með Almenna þjónustu greiðir 28% þóknun og básaleigjandi með 50/50 leið greiðir 50% þóknun.
Tapað/Fundið
Ef varan þín er sett upp í kerfinu án mynd eða léleg lýsing er á vörunni og miðinn dettur af þá er líklegt að hún endi í tapað/fundið slánni, þess vegna er mikilvægt að skrá vörur með réttu nafni, stærð og mynd.
Ef að vara finnst án merkimiða þá er hún sett á „tapað/fundið“ svæði Venus. Básaleigjendur geta alltaf fengið að skoða svæðið ef vara týnist á meðan básaleigu stendur, við geymum vörur án merkimiða í „tapað/fundið“ í 14 daga eftir það telst hún eign Venus. Ef starfsfólk rekst á vöru sem er með merkimiða eftir básaleigu er lokið sendum við viðkomandi tölvupóst er þá hægt að sækja vöruna innan 7 daga, eftir það telst hún eign Venus og verður varan seld og söluhagnaður fer til góðgerðamála.
Persónuvernd
Hjá Venus er friðhelgi viðskiptavina í fyrirrúmi. Persónuupplýsingar eru aldrei miðlaðar til þriðja aðila nema slíkt sé nauðsynlegt til að ljúka viðskiptum. Með því að samþykkja þessa skilmála skráist þú sjálfkrafa á póstlista Venus.
Skilmálar netverslunar
1. Almenn ákvæði
Þessir skilmálar gilda um öll viðskipti í gegnum venusverslun.is. Með því að staðfesta pöntun samþykkir kaupandi þessa skilmála. Seljandi er Venusverslun, kaupandi er sá einstaklingur sem skráður er aðili að viðskiptum.
2. Skilaréttur og afpöntun
Vegna eðlis vara í Venusverslun (t.d. tískufatnaður, fylgihlutir, skart í takmörkuðu upplagi) er ekki boðið upp á skilarétt, skipti eða endurgreiðslu vegna þess að kaupandi skipti um skoðun, valdi ranga stærð, rangan lit eða einfaldlega vill ekki vöruna lengur.
Allar pantanir eru endanlegar. Kaupandi samþykkir að enginn réttur er til skila eða endurgreiðslu nema lagaleg skylda sé til staðar.
3. Gölluð vara og lögbundnar úrbætur
Ef vara reynist gölluð eða röng (samkvæmt lögum um neytendakaup) skal kaupandi hafa samband við þjónustuver innan hæfilegs tíma, svo seljandi geti boðið viðgerð, skipti eða aðrar lögboðnar úrbætur.
Aðeins ef ekki er hægt að veita úrbætur eða skipti getur kaupandi átt rétt á afslætti eða riftun með endurgreiðslu – samkvæmt lögum.
Seljandi veitir enga viðbótarendurgreiðslu eða frjálsar úrbætur utan þess sem lög gera ráð fyrir.
4. Afhending
Venusverslun afhendir vörur með flutningsaðilum innan lands. Seljandi ber ekki ábyrgð á seinkunum eða tjóni sem verður eftir að vara er afhent flutningsaðila. Kaupandi ber ábyrgð á að veita réttar sendingarupplýsingar.
5. Greiðsla
Kaupandi greiðir með greiðsluleiðum sem birtar eru á síðunni (kort, millifærsla, Netgíró). Allar pantanir eru greiddar að fullu fyrir afhendingu.
6. Persónuvernd
Upplýsingar um kaupanda eru unnar samkvæmt persónuverndarstefnu Venusverslunar. Þær eru aðeins notaðar til að vinna úr pöntunum og til að veita þjónustu nema kaupandi gefi sérstakt samþykki fyrir öðru.
7. Lögsaga og ágreiningur
Komi upp ágreiningur sem ekki næst að leysa milli aðila, má vísa honum til Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa eða íslenskra dómstóla. Um skilmálana og viðskiptin gilda íslensk lög.
8. Breytingar á skilmálum
Venusverslun áskilur sér rétt til að breyta skilmálum hvenær sem er. Breytingar gilda frá birtingu á vefnum og eiga við ný viðskipti.
Samstarf
Við erum opnir fyrir samstörfum, vinsamlegast hafið sendið tölvupóst á info@venusverslun.is